Jökla II laxveiðiá á Austurlandi

Auglýsingapláss — Hafðu samband við okkur

Jökla II

Jökla II er laxveiðiá á Austurlandi er eitt af svæðum í Jöklu sem er á austurlandi í um 660 km fjarlægð frá Reykjavík.

Jökla II er í um 50 km fjarlægð frá Egilsstöðum og á upptök sín inni á öræfum.

Jökla II í afar fögru umhverfi og er 6 stanga svæði sem nær frá ofan Svelgs neðarlega í Jökuldal og að veiðistaðnum veiðistað sem heitir Arnórsstaðahvammur ofan við bæinn Merki.

Jökla II er nýtt og glæsilegt veiðisvæði á hóflegu verði! Stórt svæði sem kom skemmtilega á óvart með 70 löxum veiddum 2014 þó veiðiálagið hafi verið  lítið.

Þetta svæði er fyrst og fremst laxveiðisvæði en þó er nokkuð góð silungsveiði þarna á öllum stöðum.
Nokkuð góð aðkoma er að flestum veiðistöðum.

[box type=”success” ]Ekkert er til fyrirstöðu að lax gangi í miklum mæli upp á þetta svæði og þar með voru þetta ein ´“bestu kaupin á eyrinni“ í laxveiði á landinu 2015 miðað við verðlag![/box]

Þetta svæði hentar ákaflega vel fyrir fluguveiði og er önnur veiðiaðferð ekki leyfð allt tímabilið sem er stutt, eða frá 1. júlí og til 30. ágúst.
Kvóti hefur verið settur 2 laxar á stöng á dag, en einnig er skylduslepping á öllum laxi 70 cm eða stærri.

Engin skyldugisting er eins og er fyrir Jöklu II en tilvalið er að gista á Gistiheimilinu á Skjöldólfsstöðum í Jökuldal sem er staðsett örstutt frá árbakkanum og er við þjóðveg 1.

Einnig má athuga með gistingu neðar í Jökulsárhlíð í íbúðarhúsinu að Breiðumörk án fæðis og/eða Veiðihúsinu Hálsakot í Jökulsárhlíð með eða án fæðis ef laus eru herbergi þar.

[box type=”warning” ]Umsjónarmaður/veiðivörður:
Guðmundur Ólason 471 – 1019 og 660 – 6893.[/box]

Jökla II – Vinsælar flugur:

Umsagnir notenda

5.0
1 umsögn
Verð veiðileyfa 5.0
Aðkoma að veiðistöðum 5.0
Umhverfi 5.0
Almenn ánægja 5.0

15,000 KR

Eða hafðu samband fyrir frekari upplýsingar

Subject and content

Staðsetning

Austurland

Tímabil

Tegundir

Verð

Hafa samband

Heimilisfang

Laugavegur 77, 101 Reykjavík

Sími

+354 555 1234

Netfang

info@veidistadir.is

Opnunartímar

Mán-Fös: 9:00 - 17:00

Aðrir veiðistaðir

Sandá í Þistilfirði

Einn af bestu laxveiðiám landsins með góðum aðgangi og fallegu umhverfi.

Jökla III

Einn af bestu laxveiðiám landsins með góðum aðgangi og fallegu umhverfi.

Hafralónsá

Einn af bestu laxveiðiám landsins með góðum aðgangi og fallegu umhverfi.

Scroll to Top